Sit hérna í túristabúðinni að láta mér leiðast. Það virðist nú
ekki vera allt flæðandi af túrhestum í bænum akkúrat núna. Kannski
rokið og slyddan hafi einhver áhrif þar á... Jólin og áramótin voru
bara mjög fín sko, hinn árlegi kalkúnn bragst ekki og var jafnvel í
betra lagi þetta árið, þökk sé saltpækli mömmu
Nýsjálensku
nautalundirnar á gamlárs voru líka alveg upp á tíu, ef ekki
ellefu!!
Ég er búin að vera að vinna í máli og menningu síðan ég kom
heim...hef verið í íslensku bókunum sem var náttlega alveg
brjálað á Þorláksmessu. Held ég hafi pakkað inn
jólapökkum samfleytt í 10 klst...enda er ég orðin frekar fær í
svona slaufudúlleríi. Kann meira að segja að gera svona ská band,
ekki í kross, gegt pró
. Svo komu skilin milli jóla og nýárs
með tilheyrandi bókastöflum að ganga frá og núna er
skiptibókamarkaðurinn á fullu....þannig að það er bara mjög fínt að
fá að slappa aðeins af með túristunum í Bankastrætinu...eða
öllu heldur túristaleysinu...það er nú samt ekki alveg tómt, rétt í
þessu var að fara hópur af amríkönum.
Nú erum við búnar að kaupa miða til Mósambík svo að
það verður ekki aftur snúið úr þessu. Við (ég, mamma, Helga og
Steinunn) fljúgum út þann 21. jan. Stoppum í London yfir
daginn og fljúgum svo um kvöldið til Jóhannesborgar og þaðan svo
morguninn eftir til Mapútó. Við erum líka komnar með fína 3ja
herbergja íbúð í hverfi sem heitir Indis og er alveg rétt
hjá skólanum þar sem ég verð...með aðgang að sundlaug og allt! svo
er ekki nema 5 min að keyra niðrí bæ. Við töluðum við fólk sem
hefur búið þarna í soldinn tíma og þetta lítur allt saman bara
ótrúlega vel út. Þau segja að fólkið sé skemmtilegt og mikið líf í
borginni. Mósambík er líka búið að vera í mikilli uppsveiflu síðan
borgarastyrjöldinni lauk '95 held ég....Ég hef eftir vitrum mönnum
að talað sé um uppganginn í landinu sem svona ídeal dæmi um hvernig
Afríkulönd geti rétt úr kútnum, þó að landið sé auðvitað ennþá
mjög fátækt...........ég hlakka ekkert smá til
Ógeðslega flotta canon ixus eitthvað digital myndavélin mín sem
ég fékk frá mömmu og pabba og afa og ömmu í jólagjöf á líka eftir
að koma sér vel í afríkunni. Lofa að vera eins dugleg og ég get að
láta inn myndir á síðuna 
Svo er það franska kvikmyndahátíðin sem er að byrja og auðvitað
ætla ég nú að drífa mig að sjá einhverjar myndir. Langar til
dæmis að sjá les poupées russes sem er framhald af erasmus myndinni
l'auberge espagnole...stemmingsmynd með meiru
og Auður, ef þú lest þetta, viltu gjöra svo vel að breyta
stillingunum á blogginu þinu svo maður geti kommentað án þess að
vera með blogspot blogg!! Miiigg laaangar aaað
kooomeeentaaa!!!!!
bæ, hjördís