Hjördís í Norrköping
29.08.2005 20:30:48 / hjordis

færsla númeró únó

Þá er ég komin til Stokkhólms!!!!! Íbúðin mín hérna er mjög fín barasta, bara steinsnar frá bæði pendeltag og strætóstöð. Solna (hverfið mitt) er reyndar ekki beint niðrí bæ en þessar sænsku almenningssamgögngur eru svo geðveikt jette bra að það er allt í lagi. Meðleigjendurnir eru líka mjög almennilegir, Ég tala alltaf sænsku við franska strákinn, sem er bara fínt, franskan myndi bara rugla mig í ríminu. Það eina sem ég hef áhyggjur af er að sænskan sem ég læri sé með frönskum hreim.....kannski ekki það eftirsóknarverðasta í heimi:lol:
Svo er líka þýsk stelpa hérna sem verður út vikuna. Hún er læknanemi á Karolinska sjukhuset og líka bara mjög fín. Þegar hún fer kemur austurrísk stelpa í hebergið hennar sem er víst að læra norræn tungumál (þmt norræna.....sem er sirkabát íslenska...)
Hvað skólann varðar, þá held ég að það sé langt því frá að hann verði mér ofviða. Fyrsti skóladagurinn var í dag og ég sver það að námsáætlunin fyrir kúrsinn sem ég var í var eins og kópí peist af planinu fyrir stæ603......Þá hef ég bara meiri tíma til að læra svenskuna!!
Já, svo varð ég fyrir algjörri vitrun i gær þegar ég horfði  frábæran þátt sem heitir MacGeiver (held að það sé skrifað svona) Svona eightees spennu spæjara sniðugheita þáttur. Hlýtur eiginlega að hafa verið sýndur heima á Íslandi, ég er kannski bara of ung til að muna eftir honum
Allavegna þá er ég að spegúlera á láta þetta nægja í bili héðan úr menningunni. Hafið þið það gott á klakanum!!

» 8 hafa sagt sína skoðun