Hjördís í Norrköping
11.05.2007 08:10:13 / hjordis

leiðrétting

http://hjordisa.bloggar.is/ var það víst :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 07:28:47 / hjordis

nýtt blogg

www.hjordisa.blog.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 09:42:00 / hjordis

flutningar

Allt á fullu akkúrat núna. Erum að pakka niður og ætlum að flytja til Ryd í Linköping!! Nýja íbúðin er ekkert smá flott...og soldið mikið stærri en fataskápurinn sem við búum í núna (3 rok á 80 m2 hvorki meira né minna :) ) Set inn myndir þegar allt er komið í stand..sem kannski verður ekki strax því við ætlum líklega til Uppsala á Valborg á sunnudaginn..jejejjj. Reyndar soldið svekt yfir því að sænska veðurstofan spái 4 stiga hita í uppsala á valborg...soldið kalt miðað við 22 gráðurnar sem voru í gær...ok, stutt blogg þetta skipti.

/pakkarinn 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 16:22:06 / hjordis

Uppsala, tentur og hokkí

Loksins búin með öll próf í bili! Fór í það seinasta, heimspekisögu, í gær eftir miiikið lestrarstress daginn áður...hmmm kannski hugmynd að byrja aðeins fyrr að lesa fyrir prófin og kannski ekki fara í djamm til Uppsala helgina fyrir próf.. period no 2 byrjaði svo í dag klukkan 8 nóta bene (greinliega ekki hlynntir smá hvíld milli perioda hér í Linköping!!) Svo ég vaknaði klukkan 6 til að ná 7 rútunni, reyndar eiginlega orðin vön að vakna svona ónáttúrulega snemma, búin að gera það í 4 daga í röð núna..kannski maður taki upp gamla vanann að vakna fyrir allar aldir á morgnanna...

Já við fórum s.s. til Uppsala síðustu helgi og náðum föstudags og laugardagsdjammi...BEST var með nationrunda á föstudeginum sem Stokkhólmshópurinn var með í og á laugardeginum (eftir mjööög svo effektívan lærdómsdag á Carolina) Fórum við í afmæli til Eriks og kærustunnar hans. Borðuðum mergjaðan mat á Västgötanation. peruchevre á brauði, hjartarfilé með einhverjum krúsídúllum úr kartöflum og jógúrtís með kanel og hnetum bragðaðist ekki beint illa ;) Gestirnir í veislunni voru mjög áhugaverðir, m.a. einn gaur sem var að fara til Sthlms daginn eftir að keppa í Svíþjóðarmeistaramóti í míní-íshokkí!! alltaf heyrir maður eitthvað nýtt..

..Talandi um hokkí. Ég er orðin alveg dolfallin fan af LHC ;), við Tryggve erum búin að fara á 2 leiki sem LHC auðvitað hefur unnið báða :) ...Svíar eru soldið brjálaðir þegar kemur að íshokkí. Þegar Djurgården spilaði hérna um daginn var lestarstöðinn í Norrköping troðin af víkingarsveitarmönnum sem tóku á móti brjáluðu stokkhólmsku boltabullunum sem höfðu eyðilagt allt sem hægt er að eyðileggja í lestinni...Ég var á leiðinni heim með lestinni og fékk bíða í alveg slatta áður en þeir opnuðu lestarstöðina aftur!! Svo þegar við vorum á leiðinni heim frá Uppsala um helgina voru úrslit í bandy, Hammarby á móti Edsby í Uppsala og við tókum einmitt lestina niðureftir sem Hammarbyfólkið kom í...þeim hafði þá tekist að rústa henni allsæmilega, kannski ekki alveg eins og brjálæðingarnir í Djurgården gerðu, en samt.

híhí..og haldið þið ekki að ég hafi rekist á Sam litla hobbita, fyrrverandi samleigjanda í Stokkhólmi þegar ég var í Uppsala!!.. Fyrir þá sem ekki þekkja til er þetta undarlegasti gaur sem ég hef nokkrusinni kynnst. Hann er mjööög lágvaxinn, og svo fanatískur í dýrkun sinni á hringadrottinssögu að hann heldur að hann sjálfur sé hobbiti! 8|

wellowell...ætla að fara að kaupa kurslitteratur á netinu..svo miklu ódýrara en að versla hann í Akademibokandeln eða Bokakademin..

yfir og út

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 17:06:31 / hjordis

icke-prófplugg

Tryggve er í kryssningu og ég ætti að vera að læra undir sannolikhetsläraprófin á mán og þri, ekki blogga... hvað um það, ég var megadugleg í gær og það er föstudagur í dag ;)... ég ætti reyndar líka að vera á fótboltaæfingu, fór á mína fyrstu æfingu hjá Saltängens bk sem æfir alveg við hliðina á vatnsturninum um daginn. En ég var svo heppin að lenda á svona hardcore æfingu..suicide sprettir og þvíumlíkt og nú er ég er bara með svo brjálaðar harðsperrur að ég get varla labbað, svo fótboltaæfing er alveg út úr myndinni.

Sá á vísi.is að þeir eru að spá í snjóbyssum í Bláfjöll og Skálafell... væri ekkert smá kúl ef það færi í gegn!! :)..úff hvað ég hlakka til að komast á Sauðakrók/Akureyri á skíði um páskana, búin að vera að öfundast yfir stokkhólmskrökkunum sem búa VIÐ HLIÐINA á Hammarby backen...

Svo er minn maður bara kominn með vinnu við verkefni á vegum háskólans heima í sumar..ekkert smá flott! :)

æ, ætli ég reyni ekki að hespa smá tölfræði af áður en ég skelli í mig ica kebabpizzunni sem ég keypti á leiðinni heim..hollustan í fyrirrúmi

 

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 22:28:53 / hjordis

bloggsmogg

Jamm og jú, mín er á leiðinni til Köben næstu helgi!! Helga er í vorhléi í mr svo að hún ætlar skella sér til Hafnar hitta mig segja hæ við Sigrúnu vinkonu, Tryggve kemur líka og við ætlum að nota tækifærið og kíkja á fjölskylduna/vinina hans í Lundi :)...ekki slæmt að skella sér til útlanda (ef útlönd má kalla!) beint eftir fyrsta heimspekiprófið, intro till filosofi sem mun eiga sér stað í Key húsi Linköpingsháskóla á föstudagsmorgun. Morgundagurinn verður helgaður lestri um Medvetandet, språkliga betydelse og guð. Lestrarlistinn var soooldið óljós í þessum kúrsi þannig að ég fékk að vita í dag að kaflar sem ekki einu sinni var talað um á fyrirlestrum verða til prófs :S..þannig upp 7 á morgun og pluggharkan sex til miðnættis....eða kannski til 20 (tjejkväll á tv3;))!!

Fór til synsam (optiker) í dag og komst að því að ég er því sem næst blind á hægra auga, hvorki meira né minna en 3,75 í fjærsýni!!! Gaurinn trúði því ekki að ég hafi aldrei haft gleraugu og aldrei hausverk.. Var samt farin að finna fyrir því að ég þreyttist fljótt þegar ég las..vona að það batni enda ekki lítið að lesa í filosofins historia sem er næsta móment.

Já setti svo inn nýjar myndir bæði frá Norrköping og frá helginni þar áður þegar við vorum í Stenlyckan í Halland í sumarbústað Folkesonanna. Gerðum margt skemmtilegt; Versluðum í Gekås, Ullared sem er stærsta vöruhús í skandinavíu, á sumrin er oft ca 500 m. löng röð klukkan 6 á morgnanna til að komast inn í fyrsta sleppi klukkan 7!! trúði þessu ekki fyrst en þetta er satt!! Það eru rútur allstaðar að frá Svíþjóð/skandinavíu og jafnvel Þýskalandi sem flytja verslunaróðar kellingar þangað!! Allavega þá gerðum við góð kaup í örbylgjuofni þar sem Patrick meðleigjandi er að flytja og tekur sinn með sér, sokkum, sjampói, skúringardóti, ramma,....o.fl. skemmtilegu og óskemmtilegu. Við náðum líka að kíkja á Varberg(bærá vesturströndinni) sem er mjööög sætur bær rétt hjá. Sáum kallbadshuset, fästningen, miðbæinn, ströndina þar sem sumir duttu í sjóinn:D

góðar stundir!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 15:20:16 / hjordis

flutt

Þá er ég flutt! Fyrstu dagarnir hér í Norrköping hafa bara gengið vel. Við erum ekki nema ca 17 í teoretisku heimspekinni sem er mjög kósí..Við erum reyndar bara tvær stelpur(..eitthvað með mig og að velja strákafög :) ) og efnið virðist mjög áhugavert. Síðan fór ég til stærðfræðinámsráðgjafans í dag og skráði mig í sannolikhetslära á 1. periodi og statitisk analys á 2. periodinu þrátt fyrir skort á undanförum.. analysin og línulega algebran sem ég las í sthlm voru greinilega alveg óhemju þunnir kúrsar8|. Hann vildi endilega skrá mig í diskreta analís líka en ég var nú ekki alveg á því að lesa 35 einingar... 30 duga alveg og meira en það! Þannig að námið lítur allt saman alveg mjööög spennandi út.
Svo fékk ég loooksins að vera nolla. (jeeeeeiij!!) Kulturvetenskapprogrammet er með nollningu og heimspeki, saga og bókmenntafræðí utan prógramms fá að fljóta með...Stemmingin minnti mig reyndar svolítið á Miðgarð MH, mjöög algengt að faddrarnir væru svona semi goth..læsu manga, fíluðu sci-fi ossoleiðis. Við hittumst semsagt og elduðum tacos saman í fyrradag og svo er eitthvað prógram á hverjum degi...Á morgun er vin, ost och poesi kväll sem ég plataði Tryggve með á.
Jæja..ætla að fara að pakka upp draslinu mínu.
/Hjördís

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 21:36:16 / hjordis

lifandi

Blogg fyrir þá sem ennþá nenna að kíkja á slappa bloggið mitt :) Jamm...komin aftur til Svíþjóðar eftir langt og þægilegt jólafrí. Var ekkert mikið í því að vinna þessi jól enda kom Tryggve í heimsókn í kjallaralúxusinn á Laufásveginum. Sem betur fer er hann reyndur í að vera túristi á Íslandi svo að ég gat sleppt the golden cirkel með góðri samvisku ;) Létum bláa lónið bara nægja. Fórum líka upp í sumó og á hestbak í Mosfellsdalnum..geeeggjað gaman. Eftir jólafríið staldraði ég mjöög stutt við í Uppsala.. Er nebblega búin að vera að brettast í Åre í næstum viku núna..kom heim í gærmorgun. Þó að veðrið hafi kannski ekki verið uppá það besta var færið alveg æðislegt, sérstaklega síðustu tvo dagana eftir 60 cm fallinn snjó aðfaranótt næstsíðasta dagsins og aðeins minna aðfaranótt síðasta skíðadagsins. Ég renndi mér reyndar ekki jafn mikið og ég hefði gert þar sem Tryggve kallinn ákvað að prófa bretti þessa tvo daga svo ég var eiginlega meira í að kenna honum..náði nú samt alveg frekar góðu rennsli seinasta daginn þegar hann var kominn aðeins upp á lagið..vorum í Tegefjället þá í einum besta snjó sem ég hef nokkurntímann komist í !!

En nú er ég komin til baka..ennþá eftir mig eftir 8 tíma næturbussinn Åre-Uppsala. Er búin að vera að pakka niður herberginu mínu í dag þar sem ég er að flytja til Norrköping í bili..svo til Linköping sem fyrst þar sem ég ætla að halda áfram að læra..ekki jarðeðlisfræði eins og hérna heldur heimspeki og stærðfræði. Komst að þeirri niðurstöðu eftir önnina í uppsala að eðlisfræði væri bara ekki fyrir mig :S... Ég ætti nú samt að vera orðin vön því að flytja og skipta um skóla. Það eru ekki allir sem eyða fyrstu 4 háskólaönnunum í 4 mismunandi háskólum: Stockholms universitet --- Universidade E. Mondlane --- Uppsala Universitet --- Linköpings Universitet...En planið er að vera lengur en eina önn í Linköping. :) Hér er svo mynd af vattentornet. Við búum á hæðinni með löngu gluggunum undir bogunum á miðjum turninum!




Á morgun er svo málið að vakna snemma, þrífa og bruna síðan til Stokkhólms og hitta pabba yfir hádegismat og halda svo áfram niður til Norrköping. Veit ekki hvernig það verður með allt draslið mitt á 30 fermetrunum hans Tryggve í vattentornet..Já ég er að fara að búa í gömlum vatnsturni uppgerðum sem stúdentaíbúðir :) Ótrúlega flott.. Svo er meira að segja stúdentapubb á jarðhæðinni sem selur fullt af skrítnum/sjaldgæfum bjór og cider!! Ekki slæmt að þurfa ekki einu sinni að fara út úr húsi til að fara á pubbinn (ok, þetta hljómaði soooldið alkalega).

Jæja..þar sem Tryggve er í korridorsfest í gamla korridornum sínum í Kantorn sem ég nennti ómögulega með í er ég að spá í að nota tækifærið og kíkja á eitthvað á íslensku..t.d. fóstbræðraþættina sem ég var að ná mér í...híhíhí, fæ aldrei nóg af þeim :D
/Hjördísalísa

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 22:48:40 / hjordis

beila á nýja blogginu...get ekki annað

Nýja bloggið mitt greinilega ekki alveg að gera sig...lokar bara strax og ég  er búin að skrifa fyrstu færsluna!! Svo ætli maður haldi sig ekki við blogcentralið í bili...nýja sístemið hérna virðist líka virka betur en það gamla...

Já...bloggandinn hefur kannski ekki beint verið yfir mér þessa önn. Lofa að vera skrifnari það sem eftir er annarinnar!
æ...ég byrja að skrifa í skrefum....í þetta skiptið verður það bara upptalning á því sem ég hef verið að sýsla með og því sem ég á eftir að sýsla með.

Síðan seinast er ég búin að:

Fara í æðislega ferð til Lille... Heimsóttum líka Brussel og Gent, fórum í strandfótbolta og  á belgískan miðaldarpubb

Taka á móti Lille-búunum hér í Uppsala og túristast með þeim um borgina og nágrenni.

Fara í 1. periodsprófin og fá godkännt úr einu...bíð ennþá eftir niðurstöðum úr hinu

Byrja á 2. periodskúrsunum og komast að því að fourieranalys er alls ekki létt...:S

Fara í nokkrar borgarferðir í menninguna í Stokkhólmi

Á planinu er:

Afmælispartý hjá Völu Svölu, lítill fugl hvíslaði því að mér að það yrði glamúrþema...ekki slæmt það!!

plugg plugg plugg....skila heimadæmum á morgun og svo mekaníkdugga á miðvikudaginn.....aaarrrggg, ég sem á ekki einusinni kúrsbókina!!

Svo kannski maður fari og skoði sig aðeins um í Sverige á næstunni...etv að maður kíki á östergötland..

/Hjördís




» 4 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 22:46:48 / hjordis

ný bloggsíða

Nýtt blogg á www.myblog.is/hjordisa !!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 11:07:01 / hjordis

myndir

nýjar myndir frá Uppsala komnar inn á myndasíduna!!

annars bara allt gott ad frétta, fór í fínt krús til Helsinki um daginn, prófin nálgast allt of hratt, Búin ad kaupa mida til Brussel fyrir kúltúralexchangid í tharnaestuviku....

/Hjördís


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 14:17:22 / hjordis

tjena!!

Jamm, aetli madur skelli ekki svona eins og einu litlu bloggi adur en madur pillar ser heim a Sernandersveginn ad laera (ekki litid ad gera hja mer thessa dagana, thökk se takmarkadri kunnattu i forritun :-S )

Fyrstu thrjar vikurnar hafa verid storslysalausar. Eg fekk herbergid mitt i Flogsta an vandamala og fin husgögn ur möbelpoolen. Keypti mer nu samt rum i ikea, er ekki alveg ad fila ad sofa a sveittri margnotadri svampdynu. Rumid kom samt ekki heim fyrr en daginn eftir thokk se ófrabaerri og ó-ódýrri flutningathjonustu ikea, en sem betur fer byr Magga fraenka bara steinkast  fra sernandersvägen svo ad eg fekk ad krassa i gestaherberginu hennar. Skolinn er lika bara finn, fyrir utan fyrrnefnt vandamal med forritun..en thad kemur med aefingunni byst eg vid, og fyrir utan ad eg er ekki enntha skrad i skolann. Umsóknin min la vist uppi a hillu i antagningsenheten i margar vikur thvi thad vantadi menntaskolaeinkunnir, sem eg hafdi ekki hugmynd um, og thar sem enginn hafdi samband vid mig vissi eg ekkert fyrr en eg var ordin otholinmod eftir antagningsbeskedinu og for ad tekka a thessu. Thad atti sidan ad taka viku ad medhöndla umsoknina, en thessi vika er ordin ad tveim, svo ad eg er nu soldid pirrud ordin sko :^) Serstaklega vegna thess ad thad ad vera ekki skradur i skolann thidir ekkert internet heima, ekkert konto a uu.se, og sidast en ekki sist ekkert kårleg (get ekki skrad mig i nation) sem thidir ekkert studentadjamm (ok, mer tokst ad kjafta mig inn a Norrlands nation einu sinni, en thad var bara af thvi ad dyravördurinn var skiptinemi, ekki svii sem allir vita ad brjota ekki regur ;-) ) Jamm, svo er ID kortet a leidinni, thannig ad innan 3 vikna verd eg eins saensk og eg get ordid!!!....Mer lidur samt obbodslega saenskt tho ad eg hafi ekki id-kort; Eg hjola allt a nyja notada 2 gira hjolinu minu og i hadeginu hita eg köttbullurnar minar sidan kvöldid adur eftir ad hafa stellt tuppever boxid mitt i röd vid örbylgjuofnana. Svo fer eg i tvättstugan med ohreina tauid i  svona blárri ikea plasttösku eins og allir eiga. Kannski ad thad se ekki langt i ad eg byrji ad taka i vörina ad svia sid ..... held samt ekki :P en hver veit hvad skedur thegar id-kortid er i höfn ;)

Mer tokst svo ad troda mer....eda eiginlega var mer trodid inni stjorn BEST!!!! obboslega flott skammstofun, eg veit, stendur fyrir Board of european students of technology. Thetta er svona evropusamvinna milli haskola, fullt af allskonar hittingum i Evropu. Er m.a. a dagskranni ad fara i krus til Helsinki med stokkholmsbest og svo er skipti vid Lille og norraen radstefna i Tampere, studentaskidavika i Åre i januar sem eg aetla pottthett med a!!! strax byrjud ad hlakka til :) Thetta er mjög snidugt. fullt af pening  fra haskolanum og eu i styrk til ad hafa gaman...ekki slaemt. Svo virka krakkarnir i hopnum mjög finir, sem er náttlega adalforsenda fyrir thvi ad thetta se gaman.

Og eg er i afroi a midvikudögum....ogo gaman!!!

Allavega. Eg aetti ad fara ad pilla mer heim. Eg tharf helst ad klara miniprojekt i beräkningsvetenskap i kvöld og paela i rafmagnsfraediheimadaeminu, en thau eru algjör killer. Eg fatta ekki alveg hvernig thetta virkar herna. I beräkningsvetenskap eigum vid ad laera ad nota matlab, skrifa forrit osoleidis, en raunin er ad heimadaemin i ellära thurfa miklu meiri matlab-kunskap...meikar ekki alveg sens. 

Annars var eg ad skoda utbildningskatalogen. Thad er svo mikid ad spennandi i bodi, var ad spa i ad taka kannski kurs i afrikologi medfram eftir jol, svo vaeri eg alveg til i ad fara a kinverskulinuna eda u-kunskaps(throunarfr.)linuna einhverntiman thegar eg hef tima....hmmm

vell ó vell, taem tú gó,

puss, hjördis

ps. Stokkholmur er a planinu!!......og allir stokkholmarar velkomnir hingad, ad sjalfsögdu ;) !!


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 10:38:05 / hjordis

komin i sviariki

jaeja, eg er buin ad breyta lookinu til svithjodar aftur....nenni samt ekki ad blogga nuna

puss och kram från Uppsala,

Hjördis


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 09:39:15 / hjordis

ferðalag

Þá er skólinn loksins búinn hjá mér. Á bara eftir að ná í certificadoið mitt á skrifstofuna. Prófin gengu barasta ágætlega miðað við aðstæður. Mér tókst reyndar að næla mér í allsvakalega matareitrun kvöldið fyrir efnafræðiprófið þannig að ég varð að eyða morðfjár í að verða mér útum læknisvottorð og svo bíða viku eftir endurtekningarprófinu og komast þá að því að því hafi verið frestað um aðra viku.... tók nú samt prófið á endanum. Þetta prófavesesn kom reyndar í veg fyrir fyrirhugaða ferð okkar Helgu til Pretoriu  Nú er pabbi kominn aftur í heimsókn og mamma svona að klára verkefnið sitt, svo að við erum doldið í því að ferðast þessa daganna. Ætlum til Kruger/Nelspruit næsta sunnudag svo pabbi geti líka séð ljónin, svo vorum að koma í vikuferð um Suður Afríku og Swaziland sem var bara mjög vel heppnuð. Við byrjuðum á því að keyra allan daginn, Fyrst inn í SA til að leigja bíl, svo frá SA til Swazí, gegnum Swazí og til SA aftur. Ég held ég hafi aldrei farið í gegnum jafn mörg landamæri á stuttum tíma!! Við fórum meðal annars í krókódíla/flóðhestaskoðunarferð á fljótinu við St.Lucia, vorum svo 3 nætur í Durban þar sem við versluðum aðeins (fáránlega ódýrt) í stærsta molli á suðurhveli jarðar;-), fórum í mjög flott aquarium og lölluðum svo aðeins um miðbæ Durban. Það kom okkur mikið á óvart hversu svæðisskipt svart og hvítt fólk er ennþá. Í miðbænum, sem minnti jafnvel á Manhattan, mikið af háhýsum, var ekki hvíta manneskju að sjá, allir hvítingjarnir bjuggu í einhverjum draumaheimi í Umlangha (SuðurAfrískt Beverly Hills) eða voru við ströndina hjá aquariinu sem er álíka túristalegur staður, með fullt af litlum sætum billabong búðum og yfirmannað af surf-gæjum. Hvað um það, það var mjög gaman að koma til Durban. Síðan keyrðum við til “the Midlands” sem er hálfgerð auðn, allavega mjög lítið byggt. Þar gistum við í ótrúlega flottri kólóníal villu, sem reyndar hafði þann galla að það vantaði mikið upp á kyndingu í húsinu. Það var ískalt úti......og inni. Sem betur fer voru rafmagnslök í rúmunum svo að við dóum ekki alveg úr kulda. Þarna rétt hjá var lítill sætur veitingastaður, “the cooking bear” sem við borðuðum á rosa góðan mat. Það er óeðlilega góður matur (og asnalega ódýr) í SA. Ég hlakka ekki til að koma heim og neyðast til að éta sveittan hamborgara í Staðarskála á leiðinni til Akureyrar. Síðan lá leiðin til Swazilands þar sem við gistum á sama B&B og við vorum á síðast. Við höfðum meiri tíma í þetta skiptið svo okkur tókst að skoða “cultural village” þar sem við fengum að vita allt um fjölkvæni Swazilandsbúa. Skoðuðum líka nokkar handcraft búðir. Svo horfðum við á Frakkland-Ítalía á risaskjá í boði DSTV í house on fire, sem er við hliðina gistiheimilinu. Þar var fullt af evrópskum túristum, m.a. mikið af Frökkum og Ítölum svo stemmingin var nokkuð góð. Þegar við vorum svo búin að skila bílaleigubílnum í Malalene í SA og vorum að fara yfir landamærin til Mósambík lentum við í smá veseni. Vegabréfsáritanirnar okkar voru útrunnar svo að við urðum að kaupa nýjar á landamærunum. Það reyndist ekki vera jafnlétt og við héldum. Í fyrsta lagi gátum við ekki keypt multiply entry visa, og þurfum þess vegna að kaupa nýtt visa þegar við komum til baka úr Kruger (rándýrt nota bene) og í öðru lagi tók það þá meira en tvo tíma að líma límmiða í 5 vegabréf og stimpla þá....Samt var engin röð. Mósambísk landamæri, allavega Ressano Garcia landamærin eru algjört helvíti. Er svo að vinna í því að koma nokkrum mydnum úr ferðinni inná mydasíðuna Até a prossima, Chordiss (portúgalskur framburður á Hjördís)

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 15:06:32 / helga

Oi!

Ég og Hjördís erum byrjaðar í fótbolta í skandínavíska skólanum. Gáfumst upp á afróinu eftir að hafa orðið sammála um að fótbolti er skemmtilegri en mósambískir traditional dansar. Mér fannst það samt mjög gaman en það voru engir byrjendatímar svo við vorum ekki alveg að ná þessu...spíkatstökk 5 metra upp í loftið og svona!8|

 

 

 

Ég er hætt að vinna á barnaheimilinu. Fer samt einu sinni enn til að kveðja og svona. Get ekkert gert með krökkunum þessa viku því þeir eru að æfa dansa og söngva fyrir afmæli rauða krossins og svo í næstu viku erum við að fara að ferðast. Frekar leiðinlegt samt að hætta þegar maður er loksins búin að kynnast einhverjum krökkum og hætt að líða eins og hálfvita eins og mér leið fyrst þegar ég var þarna. Vissi ekkert hvað ég átti að gera og fannst mjög skrítið að sjá krakkana, 6 ára þau yngstu, gerandi allt, elda og þrífa og gera ekkert sjálf þar sem þau fóru bara að hlæja þegar ég spurði hvort ég gæti ekki hjálpað krökkunum. Sé einhvern veginn ekki fyrir mér 6 ára krakka á Íslandi á fjórum fótum að skúra gólf á meðan fullorðna fólkið skipar fyrir!!  Í gær gerði ég hakkísakkbolta eftir hugmyndinni hennar Sigrúnar og þeim fannst það voða gaman. Ég á eftir að sakna þeirra, þau eru svo mikil krútt.  Ein stelpan teiknaði tvær myndir af mér og fána, gerði einu sinni bandaríska fánann og svo einhvern sem átti að vera enski og skrifaði svo að ég ætti heima í héraðinu Englandi. Hún var ekki alveg að ná því að ég væri frá Íslandi. Svo er yngsti stákurinn, hann Enrique sem er 5 ára, sem blikkar mig alltaf og dansaði svo einu sinni magadans fyrir mig og Hjördísi, ber að ofann!.:lol: Ótrúlega ruglaður. Fyrst þegar ég kom vildi hann ekki teikna og hinir sögðu alltaf að hann kynni ekkert að teikna og kynni bara alls ekki neitt. Svo einn daginn eftir að ég hafði sagt að auðvitað kynni hann að teikna þá gerði hann það og var svo alltaf að biðja um að teikna eftir það.

 

 

 

 

Það eru mjög fáar stelpur þarna sem eru mikið eldri en 14 ára. Málið er að þær verða óléttar og þá koma þær ekki lengur...eru heima með barninu. Var að labba með tveim strákum í chappa (strætóarnir hérna, sem eru svona toyota mínísendibílar og það er hægt að troða endalaust í þá, þeir eru alltaf troðfullir....það væri góð hugmynd að skipta við strætóana á íslandi sem eru alltaf hálftómir og við fengjum chappana til Íslands!!!) en allavega þá hittum við tvær stelpur sem voru einu sinni heimilinu, ein sem er 19 ára og var með barn á bakinu og eina 14 ára og ólétt. Þeir sögðu mér þá að þegar stelpurnar verða óléttar þá hendum við þeim burt frá heimilinu og fóru svo að skellihlæja. Þetta var auðvita bara djók en æjjj....

 

 

 

 

Þegar Hjördís kom með mér um daginn á Boa vorum við að tala við eina konuna sem vinnur þarna og við sögðum að við ættum eina aðra systur. Henni fannst alveg hræðilegt að við værum þrjár systur og enginn bróðir og vorkenndi foreldrum okkar allsvakalega, hvað þau væru nú óheppin að eignast þrjár dætur og engann son. Synirnir gæfu miklu meiri pening og að annaðhvort ég eða Hjördís hefði átt að vera strákur. Útskýrðum svo fyrir henni að svona væri þetta ekki á Íslandi, að það væri jafnrétti (allavega miðað við Mósambík) og þar að auki veltur framtíð foreldranna ekki á launum barnanna. Þetta minnti mig samt á auglýsinguna heima sem endar á því að konan fer í kynskiptiaðgerð til að fá hæstu launin... Þetta væri allavega góð leið fyrir mósambíkana sem væru svo óheppnir að eiga engan son!

 

 

 

 

Á sunnudaginn fórum við í bíltúr til Pequenos Libombos en þar er stífla og vatnsból fyrir drykkjarvatn í Mapútó. Mósambíkanar eru mjög stoltir af stíflunum sínum og póstkortin hafa mörg mynd af stíflu! Svo eru myndir af rafmagnsstaurum á peningunum....


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4